Tveir fyrrverandi rektorar Karólínska háskólans í Stokkhólmi hafa verið leystir frá störfum í sænsku nóbelsnefndinni vegna tengsla þeirra við barkaígræðslu ítalska skurðlæknisins Paolo Macchiarini, en hann framkvæmdi aðgerð þar sem plastbarki var græddur í mann.
Sjá frétt mbl.is: Barkaígræðslulæknir rekinn
Thomas Perlmann, framkvæmdastjóri sænsku nóbelsnefndarinnar, tilkynnti brottrekstur fyrrverandi rektoranna tveggja í morgun, þeirra Harriet Wallberg, sem var rektor þegar Macchiarini var ráðinn til starfa, og Anders Hamsten sem sagði af sér sem rektor í febrúar á þessu ári vegna plastbarkamálsins. Fulltrúar Karólínska háskólans útnefna á hverju ári þá sem hljóta nóbelsverðlaunin í læknisfræði.
Í samtali við sænsku fréttastofuna TT sagði Perlmann að orðspor Hamsten og Walberg væri laskað og að skortur á trausti í þerra garð væri svo mikill að nefndin hefði ekki séð annan valkost en að óska eftir afsögn þeirra.
Í gær leystu sænsk stjórnvöld stjórn Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð frá störfum eftir að rannsókn leiddi í ljós að hún hefði sýnt vanrækslu er hún réði skurðlækninn Paolo Macchiarini til starfa og leyfði honum að gera aðgerðir á sjúklingum. Aðgerðin sem um ræðir vakti mikla athygli árið 2011 en í henni var plastbarki baðaður stofnfrumum græddur í Erítreumanninn Andemariam T. Beyene sem var á þeim tíma nemandi við Háskóla Íslands og glímdi við banvænt krabbamein í hálsi. Hann lést í kjölfarið og hóf saksóknari í Svíþjóð rannsókn á því máli vegna gruns um glæpsamlega vanrækslu eftir að einn sjúklingur til viðbótar lést. Macchiarini hefur neitað öllum ásökunum þess efnis.