Sex manneskjum, sem voru grunaðar um að hafa veitt árásarmanninum Khalid Masood aðstoð við árás hans við þinghúsið í London, hefur verið sleppt úr haldi.
Um er að ræða 21 árs konu og 23 ára mann sem voru handtekin á sama stað í Birmingham, auk 26 ára konu og þriggja manna, einnig á þrítugsaldri, sem voru handtekin á mismunandi stöðum í Birmingham.
Önnur kona til viðbótar, sem er 39 ára, var sleppt úr haldi en hún var handtekin í austurhluta London.
Aðstoðaryfirlögregluþjónninn Marcus Beale staðfesti að rannsókn lögreglunnar hafi leitt í ljós að þau hafi ekki átt neinn þátt í hryðjuverkaárásinni í Westminster.
„Við þökkum fyrir aðstoð þeirra og stuðning,“ sagði hann.
Fjórar manneskjur til viðbótar eru enn í yfirheyrslum hjá lögreglu.