Einn maður er enn í haldi bresku lögreglunnar eftir árásina í Westminster í London. Lögreglan handtók alls 11 manns en hefur sleppt 10 þeirra aftur án þess að til frekari aðgerða verður gripið gegn þeim.
Sá sem er enn í haldi lögreglu er 58 ára gamall karlmaður sem var handtekinn í Birmingham á fimmtudaginn. Hann er búsettur í sömu borg og áráarmaðurinn Khalid Masood.
Lögreglan reynir hvað hún getur til að finna út hvort Khalid Masood hafi verið einn að verki þegar hann framdi verknaðinn.
Tvær konur voru einnig handteknar en þeim var sleppt úr haldi gegn tryggingu. Önnur þeirra er 32 ára gömul.
Khalid Masood keyrði inn í mannfjölda á Westminsterbrúnni áður en hann réðst með hnífi inn fyrir girðingu við þinghúsið og stakk lögregluþjón. Alls létust fimm í árásinn að Masood meðtöldum.
Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni og sagði einn af „hermönnum“ sínum hafi framið verknaðinn.