Til stendur að beita óvenjulegum aðferðum í tilraun til að bjarga veikum háhyrningi sem tilheyrir stofni í Norðvestur-Kyrrahafi sem er í mikilli útrýmingarhættu. Veika kýrin er fjögurra ára. Í sama stofni er tuttugu ára kýr sem syndir enn með hræ kálfs síns um hafið undan ströndum Kanada. Kálfurinn fæddist 24. júlí en drapst um hálftíma síðar. Kýrin hefur ýtt honum á undan sér í yfir tíu sólarhringa. Fjölskyldan syndir við hlið hennar.
Ítarlega er fjallað um hinar fyrirhugðu björgunaraðgerðir í frétt Seattle Times sem hefur fylgst náið með háhyrningunum. Stofninn telur nú aðeins 75 dýr og hefur hann ekki komið afkvæmi á legg í þrjú ár.
J50 fæddist árið 2014 og hefur verið vel fylgst með henni síðan.
Vísindamenn bandarísku Haf- og loftslagsstofnunarinnar, NOAA, náðu í síðasta mánuði sýnum úr sjó sem hin unga háhyrningskýr blés upp úr úr öndunaropi sínu. Kýrin er þekkt undir nafninu J50. Hún er orðin mjög horuð og í ljós kom að hún er með sýkingu. Neyðaráætlun yfirvalda er í bígerð en hún gengur m.a. út á það að sleppa lifandi chinook-laxi, stútfullum af lyfjum, hjá henni en laxarnir eru helsta fæða háhyrninganna. Þeim hefur, líkt og háhyrningunum, fækkað verulega á svæðinu síðustu misseri.
Talið er að J50 eigi aðeins nokkra daga eftir ólifaða ef ekkert verði að gert. Dýrið er svo horað að höfuðkúpubein þess sjást vel, segir í frétt Seattle Times. Þá er hvítur blettur á höfði hennar, rétt við öndunaropið, sem er talinn tilkominn vegna sýkingar.