Átján ára piltur hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á morðingjann Peter Madsen í Storstrøm-fangelsinu í Danmörku þar sem þeir afplána báðir dóm. Madsen var fyrr á þessu ári dæmdur í fangelsi fyrir að myrða sænsku blaðakonuna Kim Wall.
Samkvæmt því sem fram kemur í dönskum fjölmiðlum í dag átti árásin sér stað á miðvikudagskvöld. Hlaut Madsen áverka í andliti og var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Hann hefur nú verið útskrifaður af sjúkrahúsinu og er kominn aftur í fangelsið.
Frétt norska ríkisútvarpsins um málið.
Ár er í dag liðið frá því að Madsen myrti Wall með hrottafengnum hætti um borð í kafbáti sínum. Hann var þann 25. apríl dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið.