Bandaríska alríkislögreglan FBI mun ekki ræða við Julie Swetnick í tengslum við rannsóknina á Brett Kavanaugh, dómaraefni Donald Trumps Bandaríkjaforseta. Swetnick er þriðja konan sem hefur sakað Kavanaugh um kynferðislegt áreitni.
Lögmaður Swetnick sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku þar sem kom fram að hún hafi á níunda áratug síðustu aldar orðið vitni að hegðun af hálfu Kavanaugh í garð kvenna sem falið hefði í sér kynferðislega áreitni.
Segir Swetnick að Kavanaugh hafi verið mjög drukkinn í partíum í miðskóla og hún hafi séð hann meðal annars káfa á stúlkum og grípa í þær með óviðeigandi hætti án þeirra samþykkis.
Einnig kemur fram í yfirlýsingu lögmannsins að Swetnick, sem hefur unnið lengi fyrir bandarísku alríkisstjórnina samkvæmt frétt AFP, hafi verið hópnauðgað í partíi líklega árið 1982 sem Kavanaugh sótti. Hún heldur því ekki fram að hann hafi tekið þátt í nauðguninni en segir að hann og vinir hans hafi gerst sekir um hliðstæða hegðun.
Trump sagði á Twitter seint í gærkvöldi að hann vildi að FBI myndi ræða við hvern þann sem starfsfólk þar teldi við hæfi. Fjölmiðlar vestanhafs höfðu áður greint frá því að Trump vildi takmarka rannsóknina við ákveðið fólk. Sagði hann það fjarstæðukennt.
Þrjár konur hafa sakað Kavanaugh um kynferðisofbeldi. Christine Blasey Ford bar vitni fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings þar sem hún greindi frá ofbeldi af hálfu Kavanaugh árið 1982, þegar hún var 15 ára og hann 17.
Alríkislögreglan hefur rætt við Deborah Ramirez, en hún var önnur konan sem steig fram og sakaði Kavanaugh um kynferðisofbeldi. Ramirez segir að Kavanaugh hafi berað sig fyrir framan hana í partíi og að hún hafi óvart snert lim hans.
Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í gær að tilnefna Kavanaugh í embætti hæstaréttardómara með því skilyrði að alríkislögreglan myndi rannsaka að nýju ásakanir um kynferðisbrot á hendur Kavanaugh. Á rannsókninni að ljúka eigi síðar en föstudaginn 5. október.