Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, ætlar að fela Ulf Kristersson, leiðtoga hægriflokksins Moderaterna, að mynda nýja ríkisstjórn. Þetta hefur sænska ríkissjónvarpið eftir heimildum en nú er að hefjast blaðamannafundur þar sem tilkynnt verður um ákvörðun Norlén.
Þetta er í annað skiptið sem Kristersson fær umboðið til að ræða við leiðtoga annarra flokka um stjórnarmyndunina.
Heimildir SVT voru staðfestar á blaðamannafundinum er Norlén lýsti því yfir að hann hefði falið Kristersson að reyna að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð.
Norlén segir að þó svo að Kristersson takist ekki að mynda stjórn þá séu aðrir möguleikar í stöðunni.
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Sósíaldemókrata, skilaði inn stjórnarmyndunarumboði sínu til forseta sænska þingsins í síðustu viku en Löfven hafði í tvær vikur reynt að mynda ríkisstjórn en ekki haft erindi sem erfiði frekar en Ulf Kristersson sem fyrstur fékk umboðið. Sé tillaga um forsætisráðherra felld fjórum sinnum í þinginu ber forseta þingsins að boða til nýrra kosninga.
Andreas Norlén segir að eftir viku muni hann leggja til á sænska þinginu að Kristersson verði skipaður forsætisráðherra og hefur hann því viku til þess að ræða við leiðtoga annarra flokka um myndun ríkisstjórnar. Þingið mun í fyrsta lagi greiða atkvæði um skipan Kristerssons í embætti forsætisráðherra á miðvikudag í næstu viku en umræður um fjárlög næsta árs hefjast í þinginu á fimmtudeginum.