Ríkisstjórn Jemen og uppreisnarmenn úr röðum húta hafa komist að samkomulagi um vopnahlé í hafnarborginni Hodeida og munu Sameinuðu þjóðirnar gegna lykilhlutverki í borginni, samkvæmt upplýsingum af fundi samningamanna í Svíþjóð.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, greindi frá þessu í dag en viðræður hafa staðið yfir í Rimbo í Svíþjóð undanfarna sjö daga.
Átökin í Jemen hófust með uppreisn húta sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran. Hútar hafa náð stórum hluta Jemens á sitt vald, meðal annars höfuðborginni Sanaa. Sádi-Arabía og fleiri arabaríki styðja ríkisstjórn Abedrabbo Mansour Hadi og hafa gert loftárásir á yfirráðasvæði uppreisnarmannanna og notið stuðnings stjórnvalda í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi.
Staðan í Jemen er skelfileg og telja Sameinuðu þjóðirnar að hvergi í heiminum sé neyðin jafn mikil en óttast er að hungursneyð blasi við 14 milljónum Jemena.
Guterres kom til Svíþjóðar seint í gærkvöldi og tilkynnti um samkomulagið í morgun. Hodeida er helsta hafnarborg landsins og þangað koma nánast öll matvæli og önnur neyðaraðstoð til landsins. Uppreisnarmenn réðu yfir borginni en að sögn Guterres verður hún undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Friðarviðræðunum verður fram haldið í lok janúar.