Skutu niður eldflaugina á síðustu stundu

Tundurspillirinn USS Carney beitir varnarvopnum gegn eldflaugum og drónum Húta. …
Tundurspillirinn USS Carney beitir varnarvopnum gegn eldflaugum og drónum Húta. Myndin er fengin frá bandaríska sjóhernum. AFP

Stýrieldflaug sem Hútar skutu á loft við Rauðahafið í fyrrinótt komst ískyggilega nálægt bandarískum tundurspilli áður en varnarvopn skipsins náðu að skjóta hana niður.

Fjórir bandarískir embættismenn segja flaugina hafa verið í innan við mílu fjarlægð frá skipinu þegar hún var skotin niður, en fréttastofa CNN fjallar um málið.

Í fyrri árásum hafa tundurspillarnir náð að skjóta niður flaugarnar í að minnsta kosti átta mílna fjarlægð.

Fyrsta sinn sem nota hefur þurft kerfið

Í þessu tilfelli þurfti þó tundurspillirinn, USS Gravely, að notast við svokallað CIWS-kerfi (e. Close-In Weapon System), til að hindra flaugina í því að hæfa skotmark sitt.

Er þetta í fyrsta sinn sem þurft hefur að notast við kerfið frá því Hútar hófu árásir sínar seint á síðasta ári.

CIWS-kerfið er í raun sjálfvirk vélbyssa sem er hönnuð til að koma í veg fyrir árásir á stuttu færi. Kerfið er um leið ein síðasta vörnin sem skipið býr yfir til að skjóta niður aðvífandi eldflaug, þegar allar aðrar varnir hafa brugðist.

Á myndskeiði hér að neðan má sjá kerfið í notkun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert