Norska lögreglan er nánast sannfærð um að myndband, sem virðist sýna morðið á annarri af skandínavísku vinkonunum sem fundust látnar í Marokkó í vikunni, sé ósvikið. BBC greinir frá.
Lík þeirra Maren Ueland og Louisa Vesterager Jespersen fundust á vinsælu útivistarsvæði í Atlas-fjöllum í Marokkó á mánudag. Fjöldi áverka eftir eggvopn fannst á líkunum og fjórir eru í haldi vegna morðanna.
Mennirnir í myndbandinu segja að morðin hafi verið framin til þess að hefna atburða í Sýrlandi og segir lögregla þá hafa birst í mismunandi áróðursmyndskeiðum sem tekin voru áður en morðin voru framin.
Ueland og Jespersen voru háskólanemar á þrítugsaldri og höfðu gert allar ráðstafanir fyrir mánaðarlanga gönguferð í Marokkó að sögn móður annarrar þeirra. Búist er við því að þúsundir Marokkóa votti konunum virðingu sína fyrir utan danska og norska sendiráðið í Rabat á morgun, laugardag.
Myndbandið sem um ræðir virðist sýna þegar önnur kvennanna er afhöfðuð, og segir norska lögreglan að þó að það þarfnist nánari rannsóknar virðist það raunverulegt.