Íbúar sem búa í nágrenni við Anak Krakatau eldfjallið í Indónesíu hafa verið varaðir við því að vera nálægt ströndinni þar sem óttast er önnur flóðbylgja geti farið yfir svæðið þar sem aukinn kraftur færðist í gosið í dag.
Flóðbylgja skall á ströndum eyjanna Súmötru og Jövu um klukkan hálf tíu í gærkvöldi að staðartíma. Staðfest er að 222 eru látnir og 843 eru slasaðir. Fjölda er saknað og líklegt er að fjöldi látinna hækki.
Aska og reykur streymir frá eldfjallinu líkt og sjá má á myndskeiðinu hér að neðan.
Mt. Krakatoa Eruption, one hour ago. Credit to Capt. Mykola from Susi Air#PrayForBanten #prayforanyer #PrayForLampung #PrayForSelatSunda #prayforindonesia #Krakatau #TsunamiSelatSunda #TsunamiAnyer #tsunamibanten #TsunamiLampung pic.twitter.com/xI2TU1ysBv
— Safiro (@hudasafiro) December 23, 2018
Forseti Indónesíu, Joko Widodo, hefur vottað íbúum samúð og biðlar til fólks að sýna þolinmæði. Fjölmennir hópar leitar- og björgunarsveit leita fólks í rústunum en margir vegir eru ófærir og verið er að vinna að því að flytja vinnuvélar á svæðið til að hjálpa við leitarstörf.
Anak Krakatau, sem myndaðist árið 1927, hefur sýnt aukna virkni síðustu mánuði og hefur fólk verið beðið um að forðast að vera nálægt gíg fjallsins. Fjallið gýs yfirleitt stutt í senn og var gosið á föstudag einungis tveggja mínútna og tólf sekúndna langt. Flóðbylgjan sem kom í kjölfarið var ekki stór, en vegna óvenjulegra aðstæðna, olli hún miklum skaða. Jarðvísindamenn rannsaka orsökin, sem ekki eru endanlega kunn ennþá.