Snarpur skjálfti undan ströndum Indónesíu

Eld­gos úr eld­fjall­inu Anak Krakatá. 64 hekt­ara skriða rann úr …
Eld­gos úr eld­fjall­inu Anak Krakatá. 64 hekt­ara skriða rann úr fjall­inu ofan í sjó­inn sem or­sakaði flóðbylgj­una í desember. AFP

Sterkur jarðskjálfti af stærðinni 6,6 reið yfir strandlengju Norðvestur-Indónesíu fyrir skemmstu. Engin flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út en fjölmargir hafa flúið heimili sín. Upptök skjálftans voru á hafi úti.

Jarðskjálftinn mældist á 60 kílómetra dýpi undir Molucca-hafi um það bil 175 kílómetra norðvestur af borginni Ternate. Engar fregnir hafa borist vegna mannsláta eða meiðsla á fólki og flóðbylgjuviðvörun var ekki gefin út. Fjöldi snarpra eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið.

Stutt er síðan rúmlega 400 manns létust eftir flóðbylgjur sem mynduðust í sundinu á milli indónesísku eyjanna Jövu og Súmötru. Að minnsta kosti 1.500 manns slösuðust í hamförunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert