Ýmis teikn eru á lofti um að ný ríkisstjórn taki brátt við í Svíþjóð, fjórum mánuðum eftir að þingkosningar fóru fram. Þetta er fullyrt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter þar sem segir að forystumenn Frjálslynda flokksins og Miðflokksins þurfi að ákveða sig hverjum þeir vilji tilheyra og þurfa þeir að ákveða sig um helgina.
Stefan Löfven, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, og Ulf Kristersson, formaður Moderatarna, hafa reynt að mynda ríkisstjórn hvor í sínu horni og greindu þeir Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, frá gangi mála í gær. Löfven hefur átt í viðræðum við leiðtoga Miðflokks, Frjálslyndra og Græningja en Kristersson hefur sömuleiðis rætt við Miðflokk og Frjálslynda auk Kristilegra demókrata um myndun ríkisstjórnar sem hann myndi leiða sem forsætisráðherra.
Í frétt Dagens Nyheter kemur fram að flokkarnir hafi verið „mjög nálægt samkomulagi“ í gærkvöldi en líklegt þykir að Löfven takist ætlunarverkið. Samkvæmt heimildum miðilsins munu stjórn og þingflokkur Miðflokksins funda í dag á mikilvægum fundi áður en flokksráðið kemur svo saman á laugardag þar sem endanleg ákvörðun verður tekin.
Forseti sænska þingsins mun leggja fram tillögu um næsta forsætisráðherra á þinginu á mánudag og verða greidd atkvæði um þá tillögu á miðvikudag. Ef ekki tekst að mynda nýja ríkisstjórn í þessari tilraun verður jafnvel kosið í fjórða skiptið, síðar í þessum mánuði. Sú staða hefur aldrei áður komið upp á sænska þinginu en nýr forsætisráðherra hefur alltaf verið kjörinn við fyrstu atkvæðagreiðslu í þinginu að loknum kosningum.
Ef það tekst hins vegar ekki verður að öllum líkindum boðað til nýrra þingkosninga og verða þær að eiga sér stað innan þriggja mánaða frá síðustu atkvæðagreiðslu á þinginu um forsætisráðherra. Kjördagur í Svíþjóð er ávallt á sunnudögum og því gætu þingkosningarnar orðið 21. apríl. Það er hins vegar páskadagur sem gæti sett strik í reikninginn.