Notre Dame-dómkirkjan var ofarlega í huga Kristjáns Andra Stefánssonar, sendiherra Íslands í Frakklandi, og annarra fundarmanna á fundi framkvæmdastjórnar UNESCO í morgun, en kirkjan hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 1991.
„Fundurinn hófst á því að menn minntust þessa atburðar og lýstu stuðningi og samhug við Frakka. Þetta verður ofarlega í huga hvar sem maður kemur,“ segir Kristján í samtali við mbl.is.
Eldur kom upp í kirkjunni síðdegis í gær og fylgdust Parísarbúar og líklega heimsbyggðin öll með þessari merku og sögufrægu brenna. „Þetta setur auðvitað mikinn svip á stemninguna í borginni og umræðu í fjölmiðlum og hvert sem maður kemur,“ segir Kristján.
Kristján fylgdist með brunanum fyrst um sinn úr fjarlægð á brú yfir Signu í 4. hverfi í Parísarborg. „Við horfðum á kirkjuna að aftanverðu og sáum hvernig þakið eða kirkjuskipið fuðraði upp fyrir augunum á manni.“
Mikill mannfjöldi safnaðist saman í nágrenni kirkjunnar til að fylgjast með brunanum og segir Kristján að allar brýr hafi verið yfirfullar. „Margir voru mjög slegnir og í mikilli geðshræringu.“
Emmanuel Macron forseti kom tvisvar á vettvang brunans, fyrst skömmu eftir að tilkynnt var um hann og seinna um kvöldið flutti hann ávarp fyrir utan kirkjuna og sagði hann eldsvoðann „hroðalegan harmleik“ og að átakanlegt væri að horfa á „hluta af okkur öllum brenna“. Hann hét því að endurbyggja Notre Dame.
„Hann minntist þess hvaða hlutverki kirkjan hefur haft að gegna sem hluti af þeirra menningararfleifð og byggingararfleifð. Þegar hann lýsti þessu yfir var búið að segja frá því að þeir gátu varið turnana þannig ég held að það hafi skipt öllu máli svo að hann gæti lýst þessu yfir,“ segir Kristján.