Engin jólamessa í Notre Dame

Í fyrsta sinn í tvær aldir verður ekki þjónað til altaris í Notre Dame-dómkirkjunni í París yfir jólahátíðina. Elds­voði eyðilagði hluta kirkj­unn­ar um miðjan apríl og endurbætur á kirkjunni munu ekki hefjast fyrr en um mitt næsta ár. 

Messur hafa þó farið fram í kirkjunni eftir eldsvoðann en yfirvöld í Frakklandi telja skynsamlegt að sleppa messuhaldi í kirkjunni í ár. Miðnæturmessa fer fram á aðfangadagskvöld í Saint-Germain l'Auxerrois kirkjunni sem er í grennd við Notre Dame. 

Notre Dame, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, skemmdist verulega í eldsvoðanum í vor sem og mörg menningarleg verðmæti og ómetanlegir listmunir. Þar sem fram­kvæmd­ir hafa staðið yfir við kirkj­una voru ýms­ir helg­ir mun­ir fjar­lægðir tíma­bundið, til að mynda þyrnikór­óna Krists.

Notre Dame-dómkirkj­an, sem er eitt sögu­fræg­asta mann­virki Evr­ópu, varð eldinum …
Notre Dame-dómkirkj­an, sem er eitt sögu­fræg­asta mann­virki Evr­ópu, varð eldinum að bráð í apríl, en kirkjan hef­ur lifað af frönsku bylt­ing­una og tvær heims­styrj­ald­ir. AFP

Á ýmsu hefur gengið síðan kirkjan var reist á 12. og 13. öld. Kirkjan stóð af sér áhlaup nasista í seinni heimstyrjöldinni en helgihald í Notre Dame var síðast fellt niður á síðari hluta 18. aldar sökum uppreisnar mótmælenda gegn valdi kaþólsku kirkjunnar. 

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur heitið því að endurbótum verði lokið innan fimm ára. Rannsókn á eldsupptökum stendur enn yfir en grunur leikur á að sígarettuglóð eða galli í raf­magns­leiðslum kunni að hafa valdið brun­an­um.

Enn er unnið í rúst­um Notre Dame og verður ekki …
Enn er unnið í rúst­um Notre Dame og verður ekki haf­ist handa við end­ur­bygg­ingu kirkj­unn­ar fyrr en á miðju næsta ári. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert