Krefjast lausnar þriggja leiðtoga Katalóna

Fyrrverandi varaforseti Katalíníu, Oriol Junqueras, er einn leiðtoga Katalóníu sem …
Fyrrverandi varaforseti Katalíníu, Oriol Junqueras, er einn leiðtoga Katalóníu sem Sameinuðu þjóðirnar fara fram á að verði sleppt úr haldi. AFP

Sam­einuðu þjóðirn­ar krefjast þess að spænsk yf­ir­völd láti lausa þrjá katalónska stjórn­mála­menn sem setið hafa í fang­elsi í eitt og hálft ár, án þess að hafa verið sak­felld­ir fyr­ir lög­brot.

Rétt­ar­höld yfir 12 stjórn­mála­mönn­um katalónsku aðskilnaðar­hreyf­ing­ar­inn­ar hóf­ust í fe­brú­ar og standa enn yfir. Níu eru í varðhaldi. Réttað er yfir mönn­un­um vegna aðild­ar þeirra í þjóðar­at­kvæðagreiðslu um aðskilnað Katalón­íu frá Spáni í októ­ber 2017.

„Eðli máls­ins sam­kvæmt ætti að frelsa Cuix­art, Sànchez og Junqu­eras sam­stund­is og greiða þeim skaðabæt­ur auk miska­bóta í sam­ræmi við alþjóðalög,“ seg­ir í skýrslu frá nefnd SÞ sem rann­sak­ar varðhald sem grun­ur leik­ur á að brjóti gegn mann­rétt­inda­yf­ir­lýs­ingu SÞ (e. The Work­ing Group og Arbitr­ary Detenti­on).

Bú­ist er við að rétt­ar­höld­un­um ljúki í næsta mánuði en dóm­ur verði ekki kveðinn upp fyrr en í haust. Verði þeir fundn­ir sek­ir geta þeir átt yfir höfði sér allt að 25 ára fang­elsi vegna ákæru um að hvetja til upp­reisn­ar og fyr­ir að lýsa yfir sjálf­stæði Katalón­íu um skamma stund.

Talsmaður spænskra stjórn­valda seg­ir að alla ná­kvæmni skorti í skýrslu nefnd­ar­inn­ar og að höf­und­ar henn­ar hafi leyft sér að „lit­ast af og látið mat­ast af rót­tæk­um aðskilnaðar­sinn­um“.

Réttarhöld yfir 12 stjórnmálamönnum katalónsku aðskilnaðarhreyfingarinnar hófust í febrúar og …
Rétt­ar­höld yfir 12 stjórn­mála­mönn­um katalónsku aðskilnaðar­hreyf­ing­ar­inn­ar hóf­ust í fe­brú­ar og standa enn yfir. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka