Stjórnvöld í Hong Kong hafa ákveðið að hætta við áform sín um að heimila framsal brotamanna frá sjálfstjórnarsvæðinu til meginlands Kína. Carrie Lam, héraðsstjóri Hong Kong, greindi frá þessu á blaðamannafundi. Kröftug mótmæli hafa staðið yfir vegna áformanna að undanförnu.
Lam, sem er hliðholl kínverskum stjórnvöldum, hefur verið undir miklum þrýstingi um að samþykkja ekki lögin, meðal annars frá samherjum hennar úr pólitíkinni og ráðgjöfum.
Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti hún að gert yrði hlé á áformum um að heimila framsalið og bætti við að engin dagsetning hefði verið ákveðin um að kynna lagafrumvarpið aftur til sögunnar.
Hún sagði að lög um framsal væru nauðsynleg til að stoppa í göt í kerfinu og koma í veg fyrir að glæpamenn fengju að vaða uppi í Hong Kong en viðurkenndi að stjórnvöld hefðu vanmetið andstöðu almennings.
„Mér þykir mjög leitt að verk okkar og aðrir þættir hafi orðið svona umdeild og vakið deilur í samfélagi okkar eftir tiltölulega rólega tíð undanfarin tvö ár,“ sagði hún.
Hong Kong leader Carrie Lam announces suspending introduction of controversial extradition law after mass protests https://t.co/YxhjzN6Ap7
— BBC Breaking News (@BBCBreaking) June 15, 2019