Fyrsta sakfellingin á grundvelli öryggislaganna

Tong Ying-kit.
Tong Ying-kit. AFP

Tong Ying-kit varð í dag fyrstur manna sakfelldur fyrir dómstól í Hong Kong á grundvelli nýrra öryggislaga. Tong var sakfelldur fyrir að hvetja til sundrungar og hryðjuverka með því að hafa ekið á mótorhjóli inn í hóp lögregluþjóna og að flagga fána með skilaboðum um „frelsun“ Hong Kong. Dómurinn þykir marka ákveðin tímamót. 

Yfir 100 manns hafa verið handteknir á grundvelli laganna síðan þau tóku gildi árið 2019. Lögin þykja draga úr sjálfræði Hong Kong og á grundvelli þeirra er auðveldara að sækja til saka baráttufólk og blaðamenn. 

Yfirvöld í Peking fullyrða að lögin, sem hafa verið harðlega gagnrýnd víða um heim og leiddu til umfangsmikilla mótmæla sumarið 2019, séu nauðsynleg til að auka stöðugleika á sjálfstjórnarsvæðinu. 

Tong var sakfelldur í dag í kjölfar 15 daga langrar málsmeðferðar fyrir dómstólnum. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. 

Tong, sem er 24 ára, var handtekinn í júlí á síðasta ári. Við dómsuppkvaðningu í dag sagði dómarinn, Toh, að skilaboðin sem Tong flaggaði – „frelsum Hong Kong, bylting okkar tíma“ – hafi verið til þess fallin að hvetja til mótmæla. Toh sagði að Tong ætti að hafa verið meðvitaður um að í skilaboðunum fælist stuðningur við aðskilnað Hong Kong frá Kína. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert