Mótmælendum í Hong Kong tókst fyrir nokkrum klukkustundum að brjóta sér leið inn í þinghús sjálfstjórnarhéraðsins. Í dag eiga hátíðarhöld að fara fram í tilefni þess að 22 ár eru liðin frá því að Kína tók við völdum í Hong Kong af Bretum.
Hátíðahöldin eru eins og búast mátti við mjög mörkuð af harðvítugum átökum sem fara fram á milli mótmælenda og lögreglu. Þegar mótmælendur höfðu setið um þinghúsið í nokkrar klukkustundir tókst þeim að brjóta sér leið inn í húsið.
Lögreglan hafði varað menn við og sagst mundu handtaka hvern þann sem færi yfir mörk sem höfðu verið sett við inngang þinghússins. Þegar til kastanna kom hörfaði lögregla hins vegar, í stað þess að spyrna við fæti, að því er segir á vef breska ríkisútvarpsins.
Inngengnir fóru mótmælendurnir um þinghúsið og spreyjuðu á veggi og lögðu muni í rúst. Þúsundir manna voru staddar í kringum og inni í þinghúsinu.
Mótmæli hafa geisað í Hong Kong síðan frumvarp sem skyldi leyfa framsal afbrotamanna til Kína var lagt fram á þinginu. Afgreiðslu þess var slegið á frest um óákveðinn tíma en nú er krafan sú að því verði endanlega sópað út af borðinu. Og sömuleiðis að héraðsstjórinn Carrie Lam segi af sér.