Lam fordæmir ofbeldi mótmælenda

Krefjast mótmælendur nú meðal annars afsagnar Carrie Lam og lýðræðis …
Krefjast mótmælendur nú meðal annars afsagnar Carrie Lam og lýðræðis fyrir Hong Kong. AFP

Carrie Lam, ríkisstjóri Hong Kong, fordæmir það sem hún kallar „öfgafulla notkun ofbeldis“ mótmælenda sem brutust inn í þinghús sjálfstjórnarsvæðisins og gengu þar berserksgang í gær.

Þá hafa kínversk stjórnvöld farið fram á að þeir sem stóðu fyrir innbrotinu verði sóttir til saka vegna málsins.

Mótmælendurnir héldu til í þinghúsinu klukkustundum saman þar til lögreglan greip til þess ráðs að nota gas og kylfur til þess að rýma húsið. Allt að 50 slösuðust í aðgerðunum, en umræddir mótmælendur höfðu skilið sig frá hópi friðsælla mótmælenda sem mótmæltu yfirráðum kínverskra stjórnvalda í Hong Kong, en í gær voru 22 ár síðan Bretar framseldu yfirráð sín til Kínverja.

Mótmælaaldan hófst þegar umdeilt lagafrumvarp var lagt fyrir þing Hong Kong, en það kvað á um að framselja mætti afbrotamenn til Kína. Stjórnvöld í Hong Kong hafa frestað fyrirtöku frumvarpsins um óákveðinn tíma, en mótmælin halda áfram og krefjast mótmælendur nú meðal annars afsagnar Carrie Lam og lýðræðis fyrir Hong Kong.

Íbúar Hong Kong vilja segja sig lausa frá yfirráðum Kína.
Íbúar Hong Kong vilja segja sig lausa frá yfirráðum Kína. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert