Starfsemi alþjóðaflugvallarins í Hong Kong, sem er einn fjölfarnasti flugvöllur í heiminum, fór úr skorðum annan daginn í röð þar sem þúsundir mótmælenda söfnuðust saman, fimmta daginn í röð.
Opnað var á ný fyrir umferð um völlinn í morgun en fljótlega bárust tilkynningar um að hundruðum flugferða hefði verið aflýst.
Um miðnætti að staðartíma hafði óeirðalögregla umkringt flugvöllinn, en mótmælin hafa að mestu leyti farið friðsamlega fram. Mótmælendur gerðu aðsúg að að minnsta kosti þremur mönnum, sem reyndust vera kínverskir lögreglumenn. Lögreglan í Hong Kong hefur viðurkennt að lögreglumenn hafi dulbúist sem mótmælendur til að reyna að hafa stjórn á aðstæðum.
Ritstjóri Global Times í Kína fullyrðir hins vegar að einn mannanna sem ráðist var að sé blaðamaður á vegum fjölmiðilsins sem hafi einfaldlega verið að sinna starfi sínu.
Ferðalangar hafa tekið misvel í aðgerðir mótmælenda og kallaði einn að mótmælendum að þeir væru sjálfselskir, líkt og sjá má á myndskeiðinu efst í fréttinni.
Carrie Lam, ríkisstjóri Hong Kong, hefur varað við að ofbeldi tengt mótmælunum kunni að koma Hong Kong á leið sem ekki verði af snúið.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, greindi frá því á Twitter í kvöld að kínversk stjórnvöld séu nú að færa hersveitir að mörkum Hong Kong vegna aukinnar hörku mótmælenda gegn stjórnvöldum.
Mótmælin hafa nú varað í tvo mánuði, en kveikjan að þeim var frumvarp sem lagt var fram á héraðsþinginu sem heimilaði framsal ákærðra í Hong Kong til meginlands Kína. Frumvarpið hefur nú verið afturkallað, en mótmælendur láta ekki staðar numið og vilja að Lam fari frá völdum.