Greiða 2,5 milljarða í dómsátt vegna ópíóða

Með dómsáttinni er Johnson & Johnson ekki að viðurkenna ábyrgð …
Með dómsáttinni er Johnson & Johnson ekki að viðurkenna ábyrgð sína í útbreiðslu ópíóðafaraldursins, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. AFP

Bandaríska stórfyrirtækið Johnson & Johnson hefur fallist á að greiða 20,4 milljónir dollara í dómsátt til tveggja sýslna í Ohio-ríki fyrir þátt heilbrigðisrisans í útbreiðslu ópíóíðalyfjafar­ald­urs inn­an ríkisins. Fjár­hæðin svar­ar til 2,5 milljarða króna. 

Johnson & Johnson er fjórða lyfjaframleiðslufyrirtækið sem gerir dómsátt í Ohio. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að með sáttinni sé Johnson & Johnson hins vegar ekki að viðurkenna ábyrgð sína í útbreiðslu ópíóðafaraldursins. 

Í ágúst komst dómari í Oklahoma að þeirri niðurstöðu að John­son & John­son bæri að greiða rík­inu 572 millj­ón­ir doll­ara (um 71,6 millj­arða króna) í bæt­ur fyr­ir þátt þess í út­breiðslu ópíóíðalyfjafar­aldurs inn­an ríkisins.

Dómurinn er sá fyrsti í um 2.000 mál­um sem sam­bands­ríki og sveit­ar­fé­lög í Banda­ríkj­un­um hafa höfðað gegn fyr­ir­tækj­um sem fram­leiða og dreifa verkjalyfj­um sem inni­halda ópíóða. Flest þess­ara mála verða sam­einuð í einu dóms­máli sem dóm­stóll í Ohio tek­ur fyr­ir síðar í þessum mánuði. 

Í tilkynningu Johnson & Johnson kemur fram að hvorri sýslunni verða greiddar tíu milljónir dollara, auk fimm milljóna dollara í lögfræðikostnað. Þá mun fyrirtækið greiða rúmar fimm milljónir dollara til góðgerðarsamtaka sem vinna gegn útbreiðslu ópíóðafaraldursins. 

Far­ald­ur­inn hefur kostað hundruð þúsunda manns­lífa vegna of­neyslu ópíóíðalyfja. 130 Bandaríkjamenn láta lífið á dag að meðaltali vegna ofneyslu ópíóðalyfja, samkvæmt upplýsingum frá US Center for Disease Control and Prevention, sem sér um varn­ir gegn sjúk­dóm­um og for­varn­ir í Banda­ríkj­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert