Tala látinna í óeirðunum í Síle fór í fimmtán í dag, samkvæmt þarlendum stjórnvöldum. Átök brutust út á föstudag vegna hækkaðs verðs á lestarmiðum en miklar óeirðir hafa verið í Santiago síðan fyrir helgi.
Hækkun lestarmiðanna var dregin til baka en það dugði ekki til og hefur almenningur í Síle mótmælt lágum launum, misskiptingu og spillingu.
Ellefu af fimmtán hafa látist í höfuðborginni Santiago og nágrenni hennar. Samkvæmt AFP-fréttastofunni hefur fólk látist eftir íkveikjur.
Þá urðu þrír utan höfuðborgarinnar fyrir skoti og létust af þeim sökum.
Útgöngubann hefur verið í Santiago og neyðarástand í gildi.