Fjögurra ára gamalt barn lést í mótmælum í Síle í dag. Átök hafa staðið yfir víðs vegar í landinu frá því á föstudag vegna hækkaðs verðs á lestarmiðum. Hækkunin var dregin til baka en það dugði ekki til og hefur almenningur síðan mótmælt lágum launum, misskiptingu og spillingu.
Fram kemur í frétt AFP að barnið hafi verið í fylgd forráðamanns í hópi mótmælenda þegar ölvaður ökumaður ók inn í hópinn. Maðurinn og barnið létu lífið ásamt einum til viðbótar. Alls hafa 18 látið lífið í mótmælunum frá því að þau hófust fyrir helgi.
Sebastian Piñera, forseti Síle, lagði í gærkvöldi til félagslegar umbætur, en markmið þeirra er að binda enda á mótmælin í landinu. Heyra má tillögur forsetans í myndskeiðinu hér að ofan, en meðal þess sem hann lagði til var að skattar á rafmagn yrðu frystir, lágmarkslífeyrir hækkaði um 20% og að ríkið stæði straum af kostnaði við dýrar læknaaðgerðir.