Talið er að hartnær milljón manns hafi safnast saman á götum Santiago, höfuðborgar Síle, í dag. Þetta eru fjölmennustu mótmælin hingað til en íbúar hafa krafist afsagnar Sebastian Piñera, forseta landsins og krafist aðgerða í efnahagsmálum.
Átök brutust út fyrir viku síðan vegna hækkaðs verðs á lestarmiðum. Hækkunin var dregin til baka en það dugði ekki til að lægja mótmælaöldurnar og hefur almenningur síðan mótmælt lágum launum, misskiptingu og spillingu.
Átján hafa látið lífið síðan mótmælin brutust út, þar á meðal fjögurra ára gamalt barn.
Mótmælendur fjölmenntu á götur borgarinnar og skörtuðu þjóðfánanum og sungu baráttusöngva frá 8. og 9. áratugnum, þegar Augusto Pinochet var einræðisherra í Síle.
Ríkisstjórinn í Santiago, Karla Rubilar, lýsir deginum í dag sem sögulegum. Hún hrósar mótmælendum fyrir friðsamlega framgöngu.
„Við köllum eftir réttlæti, hreinskilni og ríkisstjórn sem aðhyllist siðferðileg gildi,“ segir Fransisco Anguitar, einn mótmælendanna, í samtali við AFP-fréttastofuna.
Piñera hefur lagt til félagslegar umbætur með það að markmiði að binda enda á mótmælin í landinu. Meðal þess sem hann lagði til var að skattar á rafmagn yrðu frystir, lágmarkslífeyrir hækkaði um 20% og að ríkið stæði straum af kostnaði við dýrar læknaaðgerðir.
Í dag bað Piñera þingmenn að samþykkja tillögur hans sem fyrst í stað þess að rökræða þær í þaula.