Öfugur jarðskjálfti sem mældist 6,1 að stærð í Síle hafði engin áhrif á fleiri þúsund mótmælendur sem mótmælt lágum launum, misskiptingu og spillingu í gær í Santíagó. Til átaka kom milli öryggissveita og mótmælenda, þriðju vikuna í röð sem almenningur krefst breytinga á núverandi ástandi.
Lögreglan beitti piparúða og skaut gúmmíkúlum að mótmælendum sem grýttu lögregluna og báru eld að henni. Dæmi eru um að fólk hafi nýt sér ástandið og farið ránshendi um búðir og skemmt eignir.
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna rannsakar meint ofbeldi yfirvalda í garð mótmælenda. Talið er að 20 manns hafa látið lífið frá því mótmælin hófust 20. október.
Þrátt fyrir öflugan jarðskjálfta höfðu engar fregnir borist af tjóni eða mannsláti vegna hans.
Mótmælendur krefjast meðal annars að Sebastián Piñera forseti Síle segi af sér. Í síðustu viku tóku ráðamenn ákvörðun um að halda ekki tvær stórar ráðstefnur í landinu vegna mótmæla og óeirða. Annars vegar er um að ræða loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem átti að fara fram dagana 2. til 13. desember í Santíagó, höfuðborg Síle. Hins vegar er þetta leiðtogafundur Asíu og Kyrrahafsríkja sem átti að fara fram um miðjan nóvembermánuð.
Talið er að ákvörðunin verði áfall fyrir ferðaþjónustu Síle. Gjaldmiðill Síle, pesóinn, féll á dögunum í lægsta gengi gagnvart dollara síðan árið 2003.