Fimm hafa verið dæmdir til dauða fyrir morðið á sádiarabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi í fyrra.
Að sögn ríkissaksóknara í Sádi-Arabíu, voru 11 ákærðir fyrir aðild að morðinu en Khashoggi var myrtur á ræðismannsskrifstofu landsins í Istanbúl í Tyrklandi. Helsti ráðgjafi krónprinsins var ekki meðal þeirra sem voru ákærðir.
Sádiarabísk yfirvöld veittu í upphafi margar mögulegar skýringar á hvarfi Khashoggis áður en sú skýring var gefin að hann hefði verið myrtur af sádiarabískum embættismönnum sem hefðu tekið málin í eigin hendur. Khashoggi hefði svo látist eftir að til átaka kom inni á ræðismannsskrifstofunni.
Krónprins Sádi-Arabíu, Mohammed bin Salman, tók fulla ábyrgð á morðinu í sjónvarpsviðtali en þvertók fyrir að hafa fyrirskipað morðið.