Æðstiklerkur Írans, Ali Khamenei, fyrirskipaði að upplýst yrði um málið opinberlega eftir að honum var tjáð að úkraínska farþegaþotan hefði verið skotin niður. Þetta kemur fram í frétt Fars-fréttastofunnar.
Segir í fréttinni að Khamenei hafi jafnframt fyrirskipað hernum að farið verði yfir alla vankanta svo að tryggt verði að þetta muni aldrei endurtaka sig. Hann hefur sent fjölskyldum þeirra sem fórust samúðarkveðjur og mun ræða við forseta Úkraínu um framhaldið en hann hefur lýst því yfir að írönsk yfirvöld verði að gera hreint fyrir sínum dyrum og greiða miskabætur.
Greint var frá því í nótt að herinn hefði óvart skotið niður úkraínsku farþegaþotuna en með henni fórust allir um borð, 176 manns. Þetta kemur fram í frétt íranska ríkissjónvarpsins.
Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum kemur fram að þetta hafi verið mannleg mistök eftir að farþegaþotan flaug nálægt viðkvæmum stöðum sem tilheyra írönsku byltingarvörðunum. Fyrir mistök hafi verið talið að um óvinveitt skotmark væri að ræða og því hafi farþegaþotunni verið grandað með flugskeyti. Þeir sem bera ábyrgð á þessum mistökum verði látnir gjalda þess.
Yfirmaður lofthelgi Írans, Amirali Hajizadeh, herforingi í byltingarvörðum Írans, segist bera fulla ábyrgð á að farþegaþotan hafi verið skotin niður og hann muni samþykkja hvaða ákvörðun sem tekin verður um framtíð hans. „Ég myndi frekar vilja deyja en verða vitni að atviki sem þessu,“ segir hann.