Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær að beita kínverska embættismenn og lögregluna í Hong Kong hörðum refsiaðgerðum vegna nýrra öryggislaga gagnvart íbúum í Hong Kong.
Aðgerðirnar, sem voru samþykktar einróma, fela meðal annars í sér að bankar sem eiga í viðskiptum við kínversk yfirvöld verða beittir þvingunum. Svo að lögin öðlist gildi þurfa þau að fara fyrir öldungadeildina.
Lögin tóku gildi í gær og voru nokkur hundruð handtekin, þeirra á meðal maður sem flaggaði fána til stuðnings sjálfstæðishreyfingu héraðsins. Þá voru 300 manna mótmæli í borginni leyst upp.
Öryggislögin kveða m.a. á um bann við uppreisnaráróðri, landráðum og sjálfstæðisumleitunum sjálfstjórnarhéraðsins, og getur brot gegn þeim varðað lífstíðarfangelsi. Þá er málfrelsi og réttur til mótmæla íbúa Hong Kong verulega skertur með lögunum, en gagnrýnendur segja þau ógna réttarfarslegu sjálfstæði Hong Kong.
Samtök lögmanna í Hong Kong hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau lýsa þungum áhyggjum vegna nýju laganna. Í yfirlýsingunni segir m.a. að lögin grafi undan sjálfstæði dómstóla í Hong Kong og skerði frelsi íbúa héraðsins. Þá gagnrýna samtökin einnig orðalag laganna sem er sagt loðið.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segir refsiaðgerðirnar lið í „nauðsynlegum viðbrögðum við svokölluðum öryggislögum sem eru sett í þeim tilgangi til að skerða lýðræðislegt frelsi í Hong Kong“.