Kínversk stjórnvöld hafa skipað harðlínumanninn Zheng Yanxiong yfirmann nýrrar öryggismálastofnunar í Hong Kong.
Yanxiong er þekktastur fyrir hans hlutverk í að kveða niður mótmæli árið 2011 vegna landdeilna í kínverska þorpinu Wukan.
Öryggismálastofnunin nýja var búin til vegna nýrrar öryggislaga og mun sjá um að framfylgja þeim.
10 hafa verið handteknir á grundvelli nýju laganna síðan þau tóku gildi 1. Nýju öryggislögin kveða á um bann við uppreisnaráróðri, landráði og sjálfstæðisumleitunum Hong Kong, auk þess sem málfrelsi og réttur til að mótmæla eru verulega skert með lögunum.
Einn hefur verið ákærður á grundvelli laganna.