Bretar gagnrýna meðferð á Úígúrum

Meðferð yfirvalda á þjóðarbrotinu er sögð hörmuleg, en talið er …
Meðferð yfirvalda á þjóðarbrotinu er sögð hörmuleg, en talið er að um milljón Úígúra sé haldið í svokölluðum „námsbúðum“ í Kína. AFP

Bretland hefur sakað kínversk stjórnvöld um gróf mannréttindabrot í garð Úígúra, tyrkneskumælandi minnihlutahóps í Xinjiang héraði Kína. Þetta tilkynnti Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands. Sendiherra Kína í Lundúnum varar Breta við að fylgja í fótspor Bandaríkjamanna og beita viðskiptaþvingunum.

Meðferð yfirvalda á þjóðarbrotinu er sögð hörmuleg, en talið er að um milljón Úígúra sé haldið í svokölluðum „námsbúðum“ í Kína. Yfirvöld eru einnig sögð reyna að halda fjölgun Úígúra í skefjum með nauðungatilvistunum, trúarofsóknum, og þvinguðum ófrjósemisaðgerðum.

Raab kallar meðferð kínverskra yfirvalda ógeðfeld mannréttindabrot. „Þetta minnir á eitthvað sem við höfum ekki séð í mjög langan tíma, og það frá meðlimi alþjóðasamfélagsins sem vill láta taka sig alvarlega,“ sagði Raab í viðtali við BBC.

„Við viljum jákvætt samband við Kína, en við sjáum ekki hegðun eins og þessa án þess að gagnrýna hana.“

Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands.
Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands. AFP

Trúa ekki á einhliða þvinganir

Ummæli Raab koma í kjölfar núnings á milli Bretlands og Kína, m.a. vegna ákvörðunar breskra stjórnvalda um að banna fjarskiptafyrirtækjum í landinu að nota búnað frá kínverska fjarskiptafyrirtækinu Huawei við uppbyggingu á 5G-neti í landinu frá og með áramótum.

Bandaríkin hafa einnig beitt viðskiptaþvingunum vegna meðferðar kínverskra yfirvalda á Úígúrum. Einnig kemur til greina að setja ferðabann á alla félaga kínverska Kommúnistaflokksins og fjölskyldur þeirra vegna málsins.

Sendiherra Kína í Lundúnum hefur þó sagt að Kína muni svara í sömu mynt fylgi Bretar fordæmi Bandaríkjamanna og hefji að beita viðskiptaþvingunum gegn Kína.

„Við trúum ekki á einhliða viðskiptaþvinganir,“ segir Liu Xiaoming, sendiherra Kína í Lundúnum. „Við teljum að aðeins Sameinuðu þjóðirnar hafi heimild til að beita slíkum þvingunum.“

„Ég tel að Bretland ætti að hafa sína eigin utanríkisstefnu, í staðin fyrir að dansa í takt við Bandaríkjamenn, líkt og gerðist í Huawei-deilunni,“ bætir Xiaoming við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert