Kínverska þingið samþykkti í morgun breytingar á þingi Hong Kong, sem meðal annars kveða á um að stærstur hluti þingmanna verði valinn eftir gaumgæfilega athugun öryggisnefndar á vegum kínverskra stjórnvalda.
Með breytingunum er þingmönnum héraðsþingsins fjölgað úr 70 í 90, en jafnframt er fulltrúum sem kjörnir eru af íbúum Hong Kong fækkað úr 35 í 20, og þurfa frambjóðendur að sæta mati nefndar kínverska kommúnistaflokksins. 40 þingsæti verða valin af sérstakri nefnd kínverskra stjórnvalda, og 30 af sérhagsmunahópum úr viðskiptalífi Hong Kong, sem gjarnan eru hallir undir stjónvöld Kína.
Lögin voru einróma samþykkt á kínverska þinginu, en héraðsþing Hong Kong hafði enga aðkomu að málinu. Xi Jinping forseti hefur undirritað forsetaskipun þar sem viðaukarnir eru staðfestir.
Kínversk stjórnvöld hafa hert tökin á sjálfsstjórnarborginni verulega undanfarin misseri, til að mynda með öryggislöggjöf sem gefur kínversku stjórninni víðtæka heimild til þess að bæla niður svokallaðan uppreisnaráróður og sjálfstæðistilhneigingar Hong Kong.