Jólaferðalög komi Ómíkron á fullt flug

Dr. Fauci varar við jólaferðum.
Dr. Fauci varar við jólaferðum. AFP

Jólaferðalög munu auka útbreiðslu Ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunn­ar, jafnvel meðal fullbólusettra, og mun það reyna á heilbrigðiskerfið. Þetta segir dr. Ant­hony S. Fauci sótt­varna­lækn­ir Banda­ríkj­anna.

„Ómíkron hefur ótrúlega getu til að dreifa sér,“ sagði dr. Fauci í samtali við fréttastofu NBC.

„Það er Ómíkron bylgja á leiðinni.“

Fauci hvatti fólk til að láta bólusetja sig, fara í sýnatöku og bera grímur til að draga úr útbreiðslu nú þegar hátíðirnar nálgast.

Jenny Harries, fram­kvæmda­stjóri heil­brigðis­stofn­un­ar Bret­lands, hef­ur sagt Ómíkrón „lík­lega al­var­leg­ustu ógn­ina“ í far­aldr­in­um síðan hann hófst og varar við meti í spítalainnlögnum á næstunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert