Joe Biden Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti töluðu saman í 50 mínútur í síma í dag en ólga ríkir á milli ríkjanna vegna rússneska hermanna sem hafa verið við æfingar í grennd við Úkraínu.
Á vef The Guardian er greint frá því að samræðurnar fóru fram að beiðni Pútín en þetta er í annað skipti í þessum mánuði sem leiðtogarnir tala saman.
Biden hefur sagst vonast eftir diplómatískri lausn á deilunni við landamæri Úkraínu. Þá hefur hann einnig varað við alvarlegum afleiðingum ef Rússlandi ræðst inn í Úkraínu.
Vesturlönd hafa sakað Rússland um að hafa safnað saman allt að hundrað þúsund hermönnum við landamæri Úkraínu síðustu tvo mánuði.
Yfirvöld í Moskvu hafa kallað eftir því að Atlantshafsbandalagið muni ekki sækjast í austurátt eftir aðildarríkjum og að tiltekin vopn verði ekki send til Úkraínu eða annarra nágrannaríkja.