KLM hættir að fljúga til Úkraínu

Ákvörðunin var kynnt í dag.
Ákvörðunin var kynnt í dag. AFP

Hollenska ríkisflugfélagið KLM hefur tilkynnt að það sé hætt flugferðum til Úkraínu að sinni, þar til annað verður ákveðið.

Ákvörðunin kemur í kjölfar aukins ótta um að her Rússlands geri sig reiðubúinn til innrásar í Úkraínu.

Wopke Hoekstra, utanríkisráðherra Hollands, á blaðamannafundi í dag þar sem …
Wopke Hoekstra, utanríkisráðherra Hollands, á blaðamannafundi í dag þar sem hann hvatti landa sína til að yfirgefa Úkraínu. AFP

Umfangsmikil öryggisgreining

„Næsta flug til höfuðborgarinnar Kyiv er á áætlun í kvöld, en það verður ekki farið,“ segir í yfirlýsingu flugfélagsins.

Tekið er fram að þetta hafi verið afráðið vegna svokallaðrar rauðrar ferðaviðvörunar og eftir umfangsmikla öryggisgreiningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert