Pútín vill vinna með Vesturlöndum

Pútín segist ekki vilja fara í stríð.
Pútín segist ekki vilja fara í stríð. AFP

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist ekki vilja fara í stríð. Enn frekar er hann tilbúinn að vinna með Vesturlöndum að öryggismálum til að draga úr spennunni vegna Úkraínu.

„Við erum tilbúin að vinna frekar saman. Við erum tilbúin að fara í samningaviðræður,“ sagði Pútín á blaðamannafundi eftir viðræður við Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, í Morskvu í dag.

Fyrr í dag var greint frá því að stjórn­völd í Úkraínu teldu að viðræður við Rússa hafi tek­ist og að inn­rás væri því ekki leng­ur yf­ir­vof­andi.

Pútín sagði á blaðamannafundinum að auðvitað vilji Rússar ekki fara í stríð en þó geti ríkið ekki litið framhjá því hvernig Bandaríkin og NATO hafi túlkað meginregluna um öryggishagsmuni – að ekkert ríki ætti að styrkja öryggi sitt á kostnað annarra.

Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, hitti Pútín í Moskvu í dag.
Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, hitti Pútín í Moskvu í dag. AFP

Evrópa þurfi Rússland

Scholz sagði að það væri gott merki að búið væri að kalla hersveitir til baka.

Sömuleiðis sagði hann að til að halda öryggi í Evrópu þá þyrfti samstarf við Rússland. 

Scholz og Pútín héldu blaðamannafund eftir fund þeirra.
Scholz og Pútín héldu blaðamannafund eftir fund þeirra. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert