Töldu árásina hafa verið sviðsetta

Fallbyssu var skotið á leikskóla í bænum Stanytsia Luhanska í …
Fallbyssu var skotið á leikskóla í bænum Stanytsia Luhanska í Úkraínu í gær. AFP

Dreift hefur verið á samfélagsmiðlum mynd, sem á að gefa til kynna að árás sem gerð var á leikskóla í Úkraínu í gær hafi verið sviðsett. Það er þó myndin sjálf sem er óekta.

Þrír fullorðnir slösuðust í sprengingunni

Aðskilnaðarsinnar í austurhluta Úkraínu skutu með fallbyssum á leikskólann sem staðsettur er í bænum Stanytsia Luhanska í gær með þeim afleiðingum að þrír fullorðnir slösuðust. Engin börn slösuðust í sprengingunni, að því er fréttastofa BBC greinir frá.

Eftir árásina fór mynd af leikskólanum í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem mátti sjá gröfu í forgrunni.

Fjöldi fólks dreifði myndinni og mat það svo að árásin hefði verið sviðsett. Fylgdi það sögunni að grafan sem mátti sjá á myndinni hefði verið notuð til að gera gat á hlið leikskólans frekar en að gatið hafi komið til vegna fallbyssukúlu.

Viðurkennir að hafa átt við myndina

Samkvæmt heimildum BBC hefur sá sem birti myndina upprunalega nú viðurkennt að hann hafi átt við hana fyrir birtingu í Photoshop. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að fólk dreifi henni áfram.

Eliot Higgins, stofnandi veffréttamiðilsins Bellingcat, tísti um myndbirtinguna og sagði hana til marks um það hve heimskuleg útbreiðsla falsfrétta getur verið.

„Einhver Twitter-notandi breytir mynd af árásinni sem var gerð á leikskólann, viðurkennir svo fljótlega  að hafa átt við hana og nú er fólk að dreifa færslunni eins og myndin sé lögmæt,“ sagði Higgins, sem bætti við að hann ætti jafnvel von á því að sjá rússneska varnarmálaráðuneytið birta hina fölsuðu mynd sem sannleika. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert