Bandaríkin gefa Úkraínu varnarvopn

Antony Blinken tilkynnti um þetta í dag.
Antony Blinken tilkynnti um þetta í dag. AFP

Bandaríkin veita Úkraínu 350 milljónir dollara í viðbótarhernaðaraðstoð til að berjast gegn innrás Rússa.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti um þetta í dag.

„Þessi hernaðaraðstoð mun innihalda varnarvopn til að hjálpa Úkraínu á að takast á við herdeildir, flughernað og aðra ógn sem steðjar að,“ sagði Blinken í yfirlýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert