Aflýsir öllum flugferðum til Evrópu

Ein flugvéla flugfélagsins.
Ein flugvéla flugfélagsins. AFP

Rússneska ríkisflugfélagið Aeroflot hefur aflýst öllum flugferðum til Evrópu, í kjölfar þess að Evrópusambandið lokaði lofthelgi sinni fyrir rússneskum flugvélum eftir innrás Rússa í Úkraínu. 

„Aeroflot aflýsir öllum flugferðum í evrópska leiðakerfinu frá 28. febrúar 2022 og þar til annað verður tilkynnt,“ segir á vef félagsins.

Í lofthelgisbanni Evrópu felst bann við flugi allra rússneskra véla, þar á meðal einkaflugvéla.

Svarað í sömu mynt

Þegar höfðu mörg aðildarríkjanna 27 tilkynnt eigin lokanir á lofthelgi gagnvart rússneskum flugferðum.

Rússland hefur svarað í sömu mynt og bannað flugferðir frá löndum á borð við Bretland, Lettland, Litháen, Eistland, Slóveníu, Búlgaríu, Pólland og Tékkland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert