Saksóknarar í Stokkhólmi kröfðust í dag að minnsta kosti fimm ára fangelsisrefsingar í máli ítalska skurðlæknisins Paolo Macchiarini, sem græddi plastbarka í sjúklinga á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi.
Macchiarini er ákærður fyrir gróft ofbeldi gegn þremur sjúklingum sem hann græddi plastbarka í á árunum 2011 og 2012.
Létust allir sjúklingarnir, en að minnsta kosti einn þeirra var ekki talinn í lífshættu áður en aðgerðin var framkvæmd. Þessi þrjú tilfelli áttu sér stað í Svíþjóð en utan Svíþjóðar framkvæmdi Macchiarini fimm sambærilegar aðgerðir og eru þeir sjúklingar einnig látnir.
Ákæruvaldið hefur í réttarhöldunum fullyrt að skurðaðgerðir Macchiarini hafi gengið gegn vísindum og fenginni reynslu. Þá hafi læknirinn hagað sér af kæruleysislegum ásetningi, þar sem hann hélt áfram að framkvæma aðgerðirnar þrátt fyrir þá kvilla sem fylgt höfðu fyrri aðgerðum fyrir þá sjúklinga.
Búist er við að dómur verði kveðinn upp í málinu 16. júní.