Saksóknarinn í Svíþjóð hefur áfrýjað skilorðsbundnum dómi sem skurðlæknirinn Paolo Macchiarini hlaut fyrir aðild sína að plastbarkamálinu.
Héraðsdómur sakfelldi hann í einum ákærulið af þremur fyrr í mánuðinum. Saksóknarar höfðu farið fram á fimm ára fangelsi.
Í samtali við sænska ríkisútvarpið sagði saksóknarinn Mikael Björk að læknirinn hafi tekið mikla áhættu með því að framkvæma skurðaðgerðir á þremur sjúklingum á Karónlínska-sjúkrahúsinu Stokkhólmi.
Allir sjúklingarnir létust, en að minnsta kosti einn þeirra var ekki talinn í lífshættu áður en aðgerðin var framkvæmd.