Hitastig í Evrópu var að meðaltali tveimur gráðum heitara í október en á viðmiðunartímabilinu 1991 til 2020.
„Alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga eru mjög sýnilegar nú og við þurfum metnaðarfullar loftslagsaðgerðir á COP27 til að tryggja minnkun losunar til að ná stöðugleika í hitastigi og fylgja eftir 1,5 gráðu markmiði Parísarsamkomulagsins,“ sagði Samantha Burgess, aðstoðarforstjóri Kópernikusar, loftslagsstofnunar Evrópusambandsins, í ræðu sinni á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, sem fer nú fram í Egyptalandi.
Loftslagsstofnunin greindi frá því að hitamet hafi verið slegin víða í Vestur-Evrópu í október, meðal annars í Austurríki, Sviss og Frakklandi. Þá hafi met einnig verið slegin víða á Ítalíu og Spáni.
Í öðrum heimshlutum var hiti einnig óvenju hár í mánuðinum, svo sem í Kanada, á Grænlandi og í Síberíu.
Hins vegar var meiri kuldi í Ástralíu, á Suðurheimskautslandinu og í Austur-Rússlandi.
Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær í ávarpi sínu á COP27 að mannkynið væri á hraðri leið til loftslagshelvítis, „með fótinn enn á bensíngjöfinni“.