113 handtökutilskipanir vegna skjálftans

Tólf ára sýrlenskri stúlku, Cudi, bjargað úr húsarústum í morgun …
Tólf ára sýrlenskri stúlku, Cudi, bjargað úr húsarústum í morgun í tyrkneska héraðinu Hatay. AFP/Yasin Akgul

Tyrkneskir embættismenn segja að 113 handtökutilskipanir hafi verið gefnar út í tengslum við smíði bygginga sem hrundu í jarðskjálftanum sem varð á mánudaginn.

Tyrkneska lögreglan hefur þegar handtekið að minnsta kosti 13 manns, þar á meðal byggingaverktaka.

Yfir 28 þúsund manns eru látnir eftir skjálftann og gæti fjöldi látinna tvöfaldast.

Reiknað er með því að fleiri verði handteknir en margir telja handtökurnar tilraun til að beina ábyrgðinni fyrir hamförunum í aðrar áttir, að því er BBC greinir frá.

Bíll undir rústum byggingar sem hrundi í skjálftanum í hverfinu …
Bíll undir rústum byggingar sem hrundi í skjálftanum í hverfinu Elbistan í tyrknesku borginni Kahramanmaras. AFP/Ozan Kose

Sérfræðingar hafa í mörg ár varað við því að nýjar byggingar í Tyrklandi séu óöruggar vegna spillingar og stefnu stjórnvalda.

Þessi stefna veitti verktökum undanþágu til að beygja byggingareglugerðir til að þess að fjölga byggingum, þar á meðal á svæðum þar sem mikið hefur verið um jarðskjálfta.

Ónýtar byggingar í hverfinu Elbistan í tyrknesku borginni Kahramanmaras.
Ónýtar byggingar í hverfinu Elbistan í tyrknesku borginni Kahramanmaras. AFP/Ozan Kose

Þúsundir bygginga hrundu í jarðskjálftanum, sem mældist 7,8 stig.

Forsetakosningar eru fram undan í Tyrklandi og er framtíð Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta sögð í óvissu eftir 20 ár við völd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert