Kínversk yfirvöld saka Bandaríkjamenn um að fara með rangt mál en í gær sagði Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna að Kínverjar væru að íhuga að senda hergögn til Rússa til þess að aðstoða þá við innrásina í Úkraínu.
„Það eru Bandaríkin, ekki Kína, sem senda stöðugt vopn á vígvöllinn,“ svaraði Wang Wenbin, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, er hann var spurður út í ásakanir Blinkens.
„Við hvetjum Bandaríkjamenn til að líta í eigin barm og gera meira til þess að stöðva stríðið, stuðla að friði og friðarviðræðum, og hætta að kenna öðrum um og breiða út falsfréttir.“
Blinken sagði í fréttaskýringaþættinum Face the Nation á CBS-sjónvarpsstöðinni bandarísku að á meðal þess sem Kínverjar væru að íhuga væri að senda allt frá skotfærum til vopnanna sjálfra.
Wenbin sagði að stefna Kínverja hvað viðkæmi stríðinu í Úkraínu væri að stuðla að friði og friðarviðræðum.