Sagðir hafa grandað rússneskri sprengjuflugvél

Tupolev TU-22M3-sprengjuflugvél í ljósum logum á Soltsy-herflugvellinum, skammt frá Novgorod …
Tupolev TU-22M3-sprengjuflugvél í ljósum logum á Soltsy-herflugvellinum, skammt frá Novgorod í Rússlandi, á laugardaginn. Ljósmynd/Telegram

Talið er að Úkraínumönnum hafi tekist að gjöreyðileggja að minnsta kosti eina rússneska sprengjuflugvél af gerðinni Tupolev TU-22M3 á rússneska Soltsy-herflugvellinum nærri borginni Novgorod í norðvesturhluta Rússlands, ekki ýkjalangt frá eistnesku landamærunum.

Staðfesti rússneska varnarmálaráðuneytið á samfélagsmiðlinum Telegram á laugardaginn að árás hefði verið gerð á herflugvöllinn en tjón ekki orðið að ráði. Er fram leið birtu rússneskir hermálabloggarar hins vegar myndir sem sýna brennandi flak sprengjuflugvélar af áðurnefndri gerð.

TU-22M3-vélarnar eru gamlar í hettunni en hafa verið uppfærðar og …
TU-22M3-vélarnar eru gamlar í hettunni en hafa verið uppfærðar og bera nú flugskeyti sem þær skjóta á skotmörk í Úkraínu. Ljósmynd/Rússneska varnarmálaráðuneytið

Þá heyrist því fleygt að um tvær flugvélar gæti hafa verið að ræða sem grandað var á Soltsy-vellinum en meðal þeirra sem greina frá árásinni er bandaríska stríðsrannsóknarstofnunin Institute for the Study of War sem hefur það eftir rússneskum heimildarmönnum að Rússar hafi orðið fyrir tjóni í árásinni.

Stórsigur ef rétt reynist

TU-22M3 eru í grunninn gamlar sprengjuflugvélar sem Rússar hafa uppfært og hafa verið notaðar til að skjóta flugskeytum á úkraínsk skotmörk síðan innrás Rússa hófst.

Álíta greinendur og aðrir sérfróðir það stórsigur fyrir úkraínska herinn að honum hafi auðnast að ráðast á skotmark lengst inni í Rússlandi og granda því. Yfir það dregur meðal annarra úkraínski hermálabloggarinn Júrí Bútúsov ekki fjöður í skrifum sínum á Telegram.

Rússnesku skrifararnir liggja þarlendum hermálayfirvöldum hins vegar á hálsi fyrir að vera værukær og láta sprengjuflugvélar standa óvarðar utan flugskýlis á herflugvöllum landsins. Einn þessara skrifara, sem kallar sig Grey Zone, telur leynilegan úkraínskan andspyrnuhóp hafa gert árásina. Hóp sem starfi innan rússnesku landamæranna og hafi verið í stakk búinn til að senda árásardróna að Soltsy-flugvellinum.

Rússneski hermálabloggarinn Grey Zone skrifar um árásina og gagnrýnir rússneska …
Rússneski hermálabloggarinn Grey Zone skrifar um árásina og gagnrýnir rússneska herinn fyrir sofandahátt. Skjáskot/Telegram

The Barents Observer

Newsweek

NRK

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert