Undirbúa síðasta flugið

Bretar um borð í flugvél breska flughersins á leið frá …
Bretar um borð í flugvél breska flughersins á leið frá Súdan á miðvikudaginn. AFP/Varnarmálaráðuneyti Bretlands.

Bretar undirbúa nú síðasta flugið sem flytja á breska ríkisborgara frá Súdan. Þegar hafa 1.888 Bretar verið fluttir í 21 flugferð frá Súdan síðan á þriðjudag.

Harðir bar­dag­ar hafa geisað á milli Súd­ans­hers og upp­reisn­ar­hers­ins RSF í höfuðborg­inni Kart­úm síðan 15. apríl. Skriðdrek­ar fara um göt­ur borg­ar­inn­ar og hafa her­irn­ir einnig beitt árás­arþotum á borg­ina. Yfir 400 manns hafa týnt líf­inu í átök­un­um og þúsund­ir slasast. 

Ættingjar skildir eftir

Sumir þeirra Breta sem verið er að flytja frá átakasvæðinu segja að bresk stjórnvöld hafi neytt þá til þess að skilja ættingja sína eftir, samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar.

Konunglegi flugherinn í Bretlandi (RAF) byrjaði á þriðjudaginn að flytja fyrst þá sem eru með breskt vegabréf og náskylda ættingja sem búa í Bretlandi.

Eftir harða gagnrýni heima fyrir ákvað ríkisstjórnin í Bretlandi einnig að leyfa súdönskum læknum sem vinna í breska heilbrigðiskerfinu að fá far frá Afríkuríkinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert