Agnar Már Másson
Jake Sullivan, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, segir að það kæmi ekki á óvart ef Norður-Kórea myndi framkvæma tilraunir með kjarnorkusprengjur. Segir hann þetta í kjölfar tilraunaskots nýjasta flugskeytis Norður-Kóreumanna.
Sullivan var til viðtals í spjallþættinum „Face the Nation“ á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. Þar sagðist hann lengi hafa haft áhyggjur af því að Norður-Kórea færi að framkvæma tilraunir með kjarnavopn í sjöunda skiptið.
„Ég sé ekki neinar vísbendingar sem benda til þess að það muni gerast von bráðar,“ bætir Sullivan þó við.
Norður-Kórea tilkynnti á fimmtudaginn að tilraunaskot nýjasta flugskeytis landsins hefði tekist vel. Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefði sjálfur farið með umsjón með skotinu. Flugskeytið er jafnframt það aflmesta sem ríkið hefur átt.
Sulliven ítrekaði að það stæði til boða fyrir Norður-Kóreumenn að setjast við samningaborðið með bandarískum yfirvöldum. Segir hann að Joe Biden Bandaríkjaforseti sé „tilbúinn að setjast niður og tala skilyrðislaust um kjarnorkumálin“.