Vopnaðir hríðskotabyssum og eldsprengjum

Fólk vottar fórnarlömbum árásarinnar virðingu sína. Tala látinna er komin …
Fólk vottar fórnarlömbum árásarinnar virðingu sína. Tala látinna er komin upp í 133. AFP/Justin Tallis

Tala látinna í kjölfar hryðjuverkárásar Ríki íslams á tónleikahöllina í Crocus City í Moskvu í Rússlandi er nú komin upp 133. Ríki íslams hefur lýst því yfir að fjórir menn á þeirra vegum hafi framkvæmt árásina.

Yfirvöld í Rússlandi sögðu fyrr í dag að búið væri að handtaka 11 manns í tengslum við árásina, þar á meðal árásarmennina fjóra.

Tala látinna fari hækkandi

Leitaraðgerðir halda áfram í rústum hallarinnar og búast má við því að tala látinna fari hækkandi. 

Ríki íslams sagði á samskiptamiðlinum Telegram í dag að árásarmennirnir fjórir hefðu verið vopnaðir hríðskotabyssum, skammbyssu, hnífum og eldsprengjum. 

Sagði enn fremur að árásin væri hluti af stríði þeirra gegn löndum sem berjist gegn íslam.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert