Fjöldi látinna eftir hryðjuverkin í Crocus City-tónleikahöllinni í Moskvu, höfuðborg Rússlands, er nú kominn upp í 143. Ríki Íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Hryðjuverkin eru mannskæðasta árás hryðjuverkasamtakanna í Evrópu.
Áttatíu liggja inni á sjúkrahúsi eftir árásina, þar á meðal sex börn að sögn heilbrigðismálaráðherra Rússlands, Mikhail Murashko,. Hann ræddi við rússnesku fréttastofuna Tass.
Þá sagði ónafngreindur heimildarmaður innan heilbrigðisgeirans við Tass að 205 manns hefðu sótt göngudeildir í kjölfar árásarinnar.
Staðgengill forsætisráðherra Rússlands Tatíana Golíkova sagði á blaðamannafundi að fjöldi manns hefði enn ekki sótt sér læknisaðstoð sökum áfalls eftir árásina.