Rússnesk stjórnvöld segjast hafa handtekið fjóra til viðbótar við þá tólf sem eru grunaðir um aðild að hryðjuverkum sem framin voru í Crocus City tónleikahúsinu í Moskvu fyrir rúmri viku síðan.
Yfir 140 manns létu lífið í árásinni þann 22. mars og er um að ræða mannskæðustu árásina sem framin hefur verið í Rússlandi síðastliðna tvo áratugi.
Rússneska leyniþjónustan (FSB) greinir frá því í yfirlýsingu að fjórir hefðu verið handteknir fyrr í dag í héraðinu Dagestan í suðausturhluta Rússland. Hinir handteknu hafi átt beina aðild að því að fjármagna og undirbúa hryðjuverkin sem framin voru í tónleikahúsinu.
Nefnd rússneskra stjórnvalda gegn hryðjuverkum lýsti því yfir í gær að hún byggi yfir upplýsingum um þrjá einstaklinga sem hafa lagt á ráðin um röð hryðjuverka.
Áður höfðu rússnesk stjórnvöld tilkynnt að 12 hafi verið handteknir í tengslum við árásina, þar á meðal mennirnir fjórir sem réðust inn í tónleikahöllina.
Rússneskur dómstóll hefur úrskurðað tíu einstaklinga í gæsluvarðhald til 22. maí. Þar á meðal Yakubdjoni Yusufzody sem er sagður hafa millifær peninga á vitorðsmann nokkrum dögum fyrir árásina til þess að útveg gistingu fyrir árásarmennina. Yusufzody er frá Tadjíkistan líkt árásarmennirnir.
Íslamska ríkið hefur ítrekað sagst bera ábyrgð á árásinni. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur hins vegar sakað Vesturveldin og Úkraínu um að eiga þátt í henni.